Farsæld barna

Farsæld barna

Farsæld barna felur í sér að skapa barni sem best skilyrði til að ná þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Útgangspunkturinn í öllu sem við gerum er barnið og hagsmunir þess. Hér eru upplýinsgar um farsæld barna í Múlaþingi. (Tengill inn á heimasíðu Múlaþings). Farsæld barna | Múlaþing

Tengiliðir Tengiliður

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.

Tengiliðir í Egilsstaðaskóla eru: Hlín Stefánsdóttir (hlin.stefansdottir@mulathing.is) og Ingunn Heiðdís Yngvadóttir (ingunn.h.yngvadottir@mulathing.is) sem einnig eru deildarstjórar stoðþjónustu. Foreldrar og börn geta haft samband við tengiliði í gegnum tölvupóst eða hringja í skólann í síma 4 700 605.

Stigskipting þjónustunnar Stigskipting þjónustu

  1. Fyrsta stig: Grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Markmið að styðja við farsæld barns.
  1. Annað stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur. Markmið að tryggja farsæld barns.
  1. Þriðja stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur. Markmið að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin.

Málastjóri tilnefndur á 2. stigi farsældar Málastjóri

  • Barn sem hefur þörf fyrir fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma fær málstjóra frá barna- og fjölskylduteymi velferðarsviðs eða barnaverndarþjónustu Kópavogs eftir því sem við á. Hlutverk málstjóra er að veita frekari upplýsingar og ráðgjöf og leiða samþættingu þjónustu. Málstjóri ber ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýrir stuðningsteymi og fylgir því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við áætlun.

 

Samþætting þjónustu er unnin samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi 1. janúar 2022 og eru í innleiðingarferli til loka árs 2026. 

Á heimasíðunni www.farsaeldbarna .is má finna frekari upplýsingar um farsæld barna. Múlaþing gætir að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi ráðstöfunum samkvæmt ákvæðum persónuverndarlaga og reglum þar að lútandi. Allt starfsfólk sem kemur að vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við samþættingu þjónustu er bundið þagnarskyldu.