Foreldrafræðsla Siggu Daggar og SAFT

Um daginn fá unglingar í skólunum fræðslu frá Siggu Dögg en meðal umræðuefna eru eftirfarandi
spurningar:
Hver er ég? Hver vil ég vera? Hverjar eru fyrirmyndirnar mínar og af hverju eru þær fyrirmyndirnar
mínar? Á ég fyrirmyndir fyrir ástina og sambönd? Hvernig tala ég um ástina? Hvaða skilaboð hef ég
fengið um sambönd og frá hverjum? Eru mín mörk virt? Virði ég mörk annarra? Hvað er samþykki?
Í foreldrafræðslunni verður farið yfir sama efni út frá umræðunum sem Sigga Dögg átti með
unglingunum í skólunum. Rætt verður um áskorarnir að vera unglingur í dag á tímum snjalltækninar og
samfélagsmiðla. Fræðslan var prufukeyrð í vor og vakti mikla lukku hjá foreldrum sem hana sóttu
Þó svo fræðslan sé miðuð að foreldrum unglinga þá eru allir foreldrar velkomnir
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
SAFT og Sigga Dögg