    <language>is</language>
Egilsstaðaskóli
Hugtök í tengslum við lestrarkennslu og lestur
      <description><![CDATA[Hvað er nefnuhraði?  Og hvað er atkvæði?  Hver er munurinn á lesfimi og lestrarnákvæmni?  Þessum spurningum er svarað í litlu hefti um hugtök í tengslum við lestrarkennslu og lestur sem Drífa Magnúsdóttir umsjónarkennari og leiðtogi í Byrjendalæsi hefur tekið saman.
Í heftinu eru einnig komið með dæmi um hvernig hægt er að stuðla að auknum málþroska barna sem er undirstaða þess að geta tileinkað sér lestur og lesskilning. Allt er þetta þýðingarmikið fyrir einstaklinga til að geta átt samskipti við aðra og geta numið upplýsingar í margskonar formi. ]]></description>
Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2025 - 2026
      <description><![CDATA[Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2025 – 2026 hefur verið kynnt fyrir starfsfólki, í skólaráði og í fjölskylduráði Múlaþings. 
Skýrslan byggir á niðurstöðum Skólapúlsins og Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, niðurstöðum úr stöðu- og könnunarprófum matsferils auk lesfimiprófa, upplýsinga um þróunarstarf í skólanum og árangur nemenda á ýmsum sviðum. 
Helstu niðurstöður eru þær að börnum í Egilsstaðaskóla líður almennt vel, bæði á yngri stigum og eldri. Í 2. – 5. bekk segjast 83% þeirra vera stundum eða oft hamingjusöm í skólanum og tæplega 90% finnst stundum eða oft vel hugsað um þau í skólanum.  Ánægja barna af lestri í þessum árgöngum eykst lítillega milli ára en strákar hafa mun minni ánægju af lestri en stelpur og eru þeir talsvert undir landsmeðaltali.
Nemendum í 6.- 10. bekk líður betur en á síðasta skólaári og heldur betur en jafnöldrum á landinum.  Þessir nemendur samsama sig vel við nemendahópinn og stærstum hluta finnst þeir vera a.m.k. jafn mikils virði og aðrir.  Hins vegar minnkar þrautseigja í þessum hópum og er nokkuð undir landsmeðaltali. Nemendur telja aga minni en viðmiðunarhópar. Tíðni eineltis eykst milli ára og flest tilfelli eru meðal stráka í 6. og 7. bekk.
Í íslensku æskulýðsrannsókninni eru niðurstöður á svipuðum nótum og í Skólapúlsinum. Könnunin er lögð fyrir nemendur í 4. – 10. bekk. Líðan er almennt góð, stærstum hluta barnanna líður vel í kennslustundum og frímínútum en í 4. og 5. bekk finnst 40% nemenda of mikill hávaði í kennslustundum. Í 6.- 10. bekk segjast 26% svarenda hafa lent í slagsmálum. Líðan stelpna í 6. – 7. bekk versnar milli ára 
Foreldrakönnun Skólapúlsins var sent út í febrúar. Þátttaka í könnuninni var aðeins 74% en æskilegt þykir að þátttökuhlutfallið sé að minnsta kosti 80%. Það eru helst foreldrar barna á yngsta stigi sem svara könnuninni. 
Skv. svörum telja foreldrar að líðan barna í frímínútum sé verri en árið áður og er mælitalan nokkuð lægri en hjá samanburðarhópum. Fleiri foreldrar telja hins vegar að börnum þeirra líði vel í skólanum og er marktækur munur milli ára. 
Foreldrar telja almennt að agi í skólanum sé ekki nægur. Tími, sem foreldrar aðstoða börn sín við heimanám, þmt. heimalestur, er umtalsvert minni en hjá samanburðarhópum og minnkar talsvert frá fyrra skólaári. 
Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum stöðu- og könnunarprófa MMS og sömuleiðis niðurstöður úr lesfimiprófum. Árangur barna í Egilsstaðaskóla er svipaður og hjá viðmiðunarhópum. Lesfimiprófin voru lögð fyrir nær alla nemendur í 1. – 10. bekk og er afar ánægjulegt að sjá hve vel nemendur í 10. bekk standa sig en 47% þeirra eru í efsta mælitölubili.
Í lok skýrslunnar er farið yfir það þróunarstarf sem er unnið að í Egilsstaðaskóla.  Það starf er mikilvægur þáttur í öllu umbótastarfi skólans.
Sjálfsmatsskýrslan er aðgengileg til lestrar á heimasíðunni. 
Hvernig getur stærðfræði nýst okkur?
Hvernig getur við nýtt stærðfræði í daglegu lífi?  Krakkarnir í 10. bekk unnu verkefni sem fólst í því að mæla upp herbergin þeirra og hanna svo módel í minnkaðri stærð.  Módelin voru fjölbreytt og afar mismunandi útfærð, með mismiklum smáatriðum, allt eftir smekk hvers og eins. Krakkarnir sýndu uppmælingarnar og svo útreikningana sem þau gerðu til að minnka hlutföllin. Allt getur þetta reynst þeim vel í framtíðinni. ]]></description>
Heimabyggðin
Veljið ykkur svæði á Fljótsdalshéraði sem ykkur finnst þurfa að breyta og endurbæta.  Þannig hljóðaði verkefnalýsing krakkanna í 10. bekk sem unnu verkefni sem kallast heimabyggðin. Í vikunni sýndu nemendur afrakstur vinnunnar í formi módela og vinnulýsinga. Það voru fjölbreyttar útfærslur á nokkrum svæðum á Héraði; Gokart braut við hliðina á Landsnetshúsinu, íbúðabyggð með göngugötu á garðalosunarsvæðinu, ýmsar útfærslur á svæðum við ME, kirkjuna og á nesinu, bátaleiga og fleira í Atlavík og fleiri hugmyndir voru sýndar. Krakkarnir lögðu mörg áherslu á sjálfbærar lausnir t.d. með því að hafa sólarsellur á þökum og lítil vatnsvirkjun. 
Það er alltaf gaman að sjá hversu fjölbreyttar hugmyndir koma frá nemendum í þessari hugmyndavinnu og hvað þau eru yfirleitt virk í verkefninu. 
Foreldrum & forsjáraðilum auk sveitarstjóra og sveitarstjórnarfulltrúum var boðið að koma og skoða verkefnin og krakkarnir útskýrðu hugmyndirnar fyrir gestunum. Meðfylgjandi eru myndir sem sýna fjölbreytileikann. ]]></description>
Skólareglur Egilsstaðaskóla endurskoðaðar
      <description><![CDATA[Allir grunnskólar eiga að setja sér skólareglur þar sem er kveðið á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar lífsvenjur.  Í reglunum þarf að koma fram hvernig bregðast skal við brotum á þeim.  Í Egilsstaðaskóla hefur staðið yfir endurskoðun á skólareglum. Þar hefur verið tekið mið af hugmyndafræði uppeldis til ábyrgðar þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu sjálfsaga og tengslamiðaðri nálgun Heillaspora, þar sem er lögð áhersla á velferð, öryggi og virka þátttöku barna. Áhersla er lögð á jákvæð samskipti og virðingu fyrir öðru fólki og umhverfi. 
Í könnunum Skólapúlsins hefur komið fram að bæði nemendum og foreldrum & forsjárfólki hefur þótt agi of lítill í skólanum. Í svörum nemenda kemur fram að kennarar þurfi að bíða lengi eftir að nemendur róist, það sé oft hávaði og óróleiki í tímum og að nemendur hlusti ekki á það sem kennarinn segir.  Tæplega 50% svarenda í foreldrakönnun finnst agi í skólanum of lítill. 
Það er því mikilvægt að í skólareglum séu skýrir rammar fyrir nemendur og starfsfólk svo hægt sé að bregðast við frávikum. Umsjónarkennarar eru þessa dagana að yfirfara reglurnar með nemendum þannig að öllum séu þær vel kunnar. 
Skólareglur Egilsstaðaskóla eru aðgengilegar á heimasíðunni, undir flipanum Skólinn - Skólareglur.
Péturshlaupið
Árlegt Péturshlaup fór fram í síðustu viku. Hlaupinn er hringur í bænum, styttri hringur fyrir 5. -7. bekk og lengri fyrir 8. - 10. bekk.  Þau sem komu fyrst í mark í hlaupinu hjá 5. - 7. bekk voru Ísabella Rún, Atli Örn og Ívar Þór.  Þau sem komu fyrst í mark í hlaupinu fyrir 8. - 10. bekk voru Eva Sólgerður og Bjarki. Meðfylgjandi er mynd af þeim sem voru í fyrstu sætunum. ]]></description>
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna
Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, var á dögunum tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 í flokknum framúrskarandi kennsla. Jónína Lovísa er tilnefnd fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna.
Jónína Lovísa hefur starfað við Egilsstaðaskóla í 15 ár og hefur á síðustu árum sérhæft sig í þjálfun í félagsfærni og vinnu með einhverfum börnum. Hún hefur miðlað víðtækri þekkingu sinni til samstarfsfólks en hún hefur m.a. sótt námskeið um "Social thinking" eða félagsfærni til Bandaríkjanna svo dæmi sé tekið. 
Í tilnefningunni segir að í störfum sínum hafi Jónína lagt megináherslu á að mynda traust og mæta nemendum þar sem þeir eru staddir með virðingu sem kalli meðal annars á að vera tilbúin að fara ólíkar leiðir að markmiðum. Þekking hennar, reynsla og leiðtogahæfni hafi haft jákvæð áhrif á nemendur, samstarfsfólk og skólasamfélagið í heild. „Jónína er fyrirmynd í starfi, leiðtogi á sínu sviði, sannkallaður talsmaður farsældar barna. Starf hennar hefur haft djúpstæð og varanleg áhrif á ótal nemendur, fjölskyldur og samstarfsfólk.“
Íslensku menntaverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.]]></description>
Saman erum við sterkari
Sterk tengls barna og foreldra eru lykilundirstaða velferðar barna. Sterk og góð tengsl barna, foreldra þeirra og forsjárfólks og starfsfólks skóla eru mikilvægur þáttur í að stuðla að velferð barna og velgengni í námi (sjá m.a. rannsóknina Félagstengsl íslenskra barna og ungmenna frá 2020 o.fl.).  Sem liður í því að styrkja tengsl fólks sem myndar skólasamfélag Egilsstaðaskóla var kallað til samverustundar í vikunni þar sem foreldrar og forsjárfólk, ömmur og afar, frænkur og frændur mættu með börnunum og tóku þátt í leikjum og þrautum. Það voru umsjónarkennarar og samráðsteymi árganga sem undirbjuggu dagskránna en hún byggði meðal annars á verkefnum sem kennarar hafa fengið þjálfun í á námskeiðum Vöndu Sigurgeirsdóttur. 
Um allt hús mátti sjá börn og fullorðna spila, dansa, leika, kubba, teikna, skrifa svo dæmi séu nefnd. Í sumum árgöngum sátu foreldrar og börn og lögðu grunn að bekkjarsáttmála og á öðrum stöðum gerðu krakkarnir tillögur að því sem þau höfðu áhuga á að bekkjartenglar gerðu með hópnum. Mikið fjör var þar sem hóparnir dönsuðu af krafti og líklegt að margir minnist tilþrifa foreldra á dansgólfinu!
Starfsfólk Egilsstaðaskóla er innilega þakklátt þeim sem komu í skólann þetta síðdegi / kvöld og voru með í að skapa einstaka stemningu. ]]></description>
Skólastarfið í september
Það eru fjölbreytt verkefni hjá krökkunum okkar í september. Við höfum fengið gesti í heimsókn í vikunni, þá Þorgrím Þráinsson og Ævar Þór Benediktsson rithöfunda.  Þeir lásu báðir uppúr bókum sem þeir eru að gefa út og Þorgrímur ræddi einnig við nemendur í 10. bekk um lífið og tilveruna.
Nemendur í 6. bekk sóttu sirkusnámskeið í Sláturhúsinu en það var hluti af BRAS, listahátíð barna á Austurlandi. Hópnum var skipt í tvennt og á meðan annar hópurinn var á námskeiði fóru hinir út í ruslatínslu, en það var reyndar dálítíð blaut útivist í gær. 
Nemendur í 10. bekk taka þátt í rannsókn á mataræði og þrjá daga í þessari viku eru þrír rannsakendur frá Háskóla Ísland í húsi að taka viðtöl við nemendur. Rannsakendur koma aftur í nóvember og fylgja rannsókninni eftir. 
Fimmtudaginn 24. september er öllum nemendum í 9. og 10. bekk boðið á Starfamessu í Neskaupstað þar sem kynnt verða störf og starfsleiðir á Austurlandi.  Það verður eflaust kærkomið fyrir krakkana að fá svo frí á föstudaginn en þá funda kennarar af öllu Austurlandi á haustþingi KSA. ]]></description>
Leiðtogi í Byrjendalæsi fær viðurkenningu
Árlega er haldin námstefna um Byrjendalæsi á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.  Á þessum námstefnum koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi auk annars áhugafólks um læsi á yngsta stigi grunnskóla. Í ár var námsstefnan tileinkuð Rósu Eggertsdóttur fræðikonu, menntafrumkvöðli og höfundi Byrjendalæsis.  Veittar voru viðurkenningar og úthlutað úr minningarsjóði Rósu í fyrsta sinn til framúrskarandi læsiskennara. Einn þeirra kennara sem fékk viðurkenningu var Drífa Magnúsdóttir umsjónarkennari og leiðtogi Byrjendalæsis í Egilsstaðaskóla. 
Drífa hefur verið leiðtogi Byrjendalæsis frá því að farið var að kenna eftir aðferðinni árið 2014. Hún hefur verið framúrskarandi leiðtogi, fylgst með nýjungum og þróun í Byrjendalæsi, sem og á öðrum sviðum. Hún er öflug fyrirmynd fyrir aðra kennara á yngsta stigi en hún er faglega mjög sterk og hefur lagt mikla áherslu á að leggja góðan grunn í námi barnanna sem hún kennir. 
Við erum stolt af því að hafa Drífu Magnúsdóttur, framúrskarandi Byrjendalæsiskennara, í okkar röðum í Egilsstaðaskóla. ]]></description>
Sterkir hópar
Ein af frumþörfum manneskjunnar er að tilheyra og finna til öryggis í hóp. Í dag er skóladagur barna í Egilsstaðaskóla helgaður því að styrkja og efla hópa með margvíslegum samvinnuverkefnum og þrautum. Samráðshópar árganga hófu undirbúning fyrir verkefni dagsins á námskeiði með Vöndu Sigurgeirsdóttur í ágúst. Skólinn iðar af líf, bæði inni og úti, og krakkarnir vinna að óhefðbundnum viðfangsefnum eins og að stíga í takt, safna í bekkjarsáttmála, smíða báta, spila, leika með Lego, syngja saman og ýmislegt fleira. 
Myndirnar sýna einhver af þeim viðfangsefnum sem krakkarnir hafa fengist við og það er augljóst að verkefni dagsins höfðuðu til margra nemenda.]]></description>
Kynningarfundir fyrir foreldra og forsjárfólk
      <description><![CDATA[Miðvikudaginn 9. september verða kynningar á vetrarstarfinu fyrir foreldra og forsjárfólk barna í Egilsstaðaskóla.  Dagskráin hefst með því að deildarstjórar stoðþjónustu, Ingunn Heiðdís og Hlín, kynna starf tengiliða farsældar í skólanum. Að því loknu kynna umsjónarkennarar árganga helstu áherslur vetrarins. Fundunum er skipt niður eftir stigum:
1. - 4. bekkur kl. 16.30
5. - 7. bekkur kl. 17.30
8. - 10. bekkur kl. 18.30
Reiknað er með að fundirnir taki um klukkustund í heildina.  
Foreldrar og forsjárfólk er hvatt til að mæta!]]></description>
Val á elsta stigi
      <description><![CDATA[Nemendur í 8.-10. bekk skulu samkvæmt grunnskólalögum nr. 91/2008 eiga kost á vali um  námsgreinar, allt að 1/5 af námstíma á hverjum vetri.   
Frjálst val á elsta stigi í Egilsstaðaskóla er 4 kennslustundir á viku. Valið er um tvö mismunandi námskeið; annað kennt á þriðjudögum og hitt á  fimmtudögum.  Valinu er skipt upp í 4 tímabil og er hvert tímabil 7 til 9 vikur. 
Í dag var kynnt fyrir nemendum í 8. - 10. bekk hvaða námskeið eru í boði á valtímabili 1 sem nær fram í nóvember. Eitt af því sem er í boði er þátttaka í uppsetningu á söngleiknum Mamma mia sem verður sýndur 12. nóvember. Það hefur ávallt verið mjög vinsælt hjá nemendum að taka þátt í árshátíð en auk þess er boðið upp á sviðsmyndagerð fyrir árshátíðina,  heimilisfræði, pílu og golf, Skólahreystival, kvikmyndir, mottugerð, þátttöku í Nemendaráði og síðast en ekki síst Lego en í því vali búa nemendur sig undir þátttöku í keppninni First Lego League sem verður haldin 13. nóvember í Reykjavík.
Heimilt er skv. grunnskólalögum að meta skipulagt nám, sem er stundað utan skólans t.d. við tónlistarskóla, sem hluta af frjálsu vali. Auk þess er heimilt að meta þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðaliðastarfi. Þetta fellur undir svokallað utanskólaval. Nemendur hafa þá frjálsar hendur með hvenær þeir skila þeim tímum sem falla undir utanskólavalið og er það ekki bundið við tímana kl. 13.50 – 15.10 á valdögum en skóla lýkur fyrir þessa nemendur kl. 13.40 á því tímabili sem utanskólavalið er valið. Í valbæklingi, sem er birtur á heimasíðu, undir flipanum Nám og kennsla - Val í 8. - 10. bekk er utanskólaval nánar útskýrt og hvernig er reiknað út hve oft nemendur geta fengið að vera í utanskólavali. 
Kennsla í vali hefst 8. september.
Göngudagurinn
      <description><![CDATA[Miðvikudaginn 2. september er stefnt að göngudegi.  Þá ganga nemendur og starfsfólk skólans á ýmsa staði á Fljótsdalshéraði og eru gönguleiðir valdar með tilliti til aldurs og getu nemenda. 
Dagurinn er uppbrotsdagur og þá er skólastarfið óhefðbundið.  Nemendur í 1. - 4. bekk koma tilbaka í skólann fyrir hádegismat og ljúka skóladeginum með umsjónarkennurum. Frístund tekur svo við fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar. 
Nemendur í 5. - 10. bekk fara heim þegar þau koma tilbaka í skólann og er það á mismunandi tímum. Síðast koma þeir sem ganga í Stórurð. 
1. bekkur gengur í Sigfúsarlund, 2. bekkur gengur að Klofasteini, 3. bekkur gengur í Egilsstaðavík, 4. bekkur gengur á Hrafnafell, 5. bekkur gengur að Grettistaki, 6. bekkur gengur að Fardagafossi, 7. bekkur gengur í Valtýshelli, 8. bekkur gengur í Bjargselsbotna, 9. bekkur gengur í Stapavík og 10. bekkur gengur í Stórurð. Ferðin hefst í rútu hjá þeim sem hefja gönguna langt frá skólanum. 
Krakkarnir þurfa að koma klædd eftir veðri og á góðum skóm. Allir þurfa að taka með sér hollt nesti og passa að gleyma ekki drykkjum. 
Foreldrum og forsjárfólki er velkomið að slást í hópinn í göngunum en ekki er hægt að lofa plássi í rútunum. ]]></description>
Nemendaviðtöl
      <description><![CDATA[Skólastarfið í Egilsstaðaskóla hefst þriðjudaginn 25. ágúst með því að allir nemendur koma með foreldrum sínum / forsjárfólki í viðtal til umsjónarkennara. Markmið viðtalanna er mynda tengsl milli barnanna og kennara þeirra og að þau mæti í kennslustofuna sína í rólegheitum til að átta sig betur á aðstæðum. 
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst. 
Skrifstofa skólans opnuð eftir sumarfrí
Skrifstofa Egilsstaðaskóla hefur opnað eftir sumarfrí.  Endurmenntunardagar kennara eru 10. - 14. ágúst og starfsdagar hefjast þ. 15. ágúst. Skólastarf hefst með nemendaviðtölum þriðjudaginn 25. ágúst. Foreldrar og forsjáraðilar munu fá sendar upplýsingar um fyrirkomulag viðtalanna og tímasetningar. ]]></description>
Sumarfrí 
Skrifstofa Egilsstaðaskóla verður lokuð vegna sumarleyfa frá hádegi föstudaginn 19. júní og til þriðjudagsins 4. ágúst. Ef koma upp brýn mál varðandi skólann er hægt að hafa samband við Viðar Jónsson skólastjóra, vidar.jonsson@mulathing.is]]></description>
Aðlögun námsefnis með hjálp gervigreindar – þróunarverkefni
Skólaárið 2025-2026 var unnið að þróunarverkefninu Aðlögun námsefnis með hjálp gervigreindar. Verkefnið var styrkt af Sprotasjóði. Markmið verkefnisins var að efla þekkingu kennara á því hvernig nýta megi gervigreind í kennslu, verkefnagerð og undirbúningi. Sérstök áhersla var lögð á aðlögun námsefnis að ólíkum þörfum nemenda.
Verkefnið fólst í tveimur námskeiðum og að veita kennurum aðgang að gervigreindartólinu Viskubrunni svo að þeir gætu prófað sig áfram. Til að meta stöðu og þróun verkefnisins voru lagðar fyrir þrjár kannanir meðal kennara yfir skólaárið.
Niðurstöðurnar sýna að verkefnið skilaði góðum árangri. Í upphafi skólaárs höfðu 60% kennara prófað að nota gervigreind í starfi sínu en í lok þess var hlutfallið komið í 89%. Regluleg notkun jókst einnig og fleiri kennarar fóru að nýta gervigreind við undirbúning, hugmyndavinnu, verkefnagerð, einföldun texta og þýðingar.
Sérstaklega má sjá árangur í aðlögun námsefnis. Í ágúst sögðust 25% kennara nota gervigreind í þeim tilgangi en í maí var hlutfallið komið í 64%. Kennarar nefndu meðal annars að gervigreind hefði nýst við að búa til verkefni á mismunandi þyngdarstigum, stytta og einfalda texta, útbúa spurningar og aðlaga verkefni fyrir nemendur sem þurfa aukinn stuðning.
Verkefnið hefur einnig stuðlað að mikilvægri faglegri umræðu um ábyrga notkun gervigreindar, gæði efnis, gagnrýna yfirferð og notkun nemenda á slíkum tólum. Næstu skref verða meðal annars að halda áfram að efla kennara í notkun gervigreindar, deila góðum dæmum og móta sameiginleg viðmið um ábyrga notkun.
Vegleg gjöf frá Kvenfélaginu Bláklukku
Á starfsdegi var skólanum afhent hjartastuðtæki frá Kvenfélaginu Bláklukku. Það voru fulltrúar kvenfélagsins, þær Jóhanna Jörgensdóttir formaður og Málfríður Hannesdóttir, sem afhentu skólastjóra gjöfina á starfsmannafundi.  Á skyndihjálparnámskeiði, sem starfsfólk skólans sótti í vetur, var rætt um nauðsyn þess að geta brugðist fljótt við skyndilegum veikindum á stórum vinnustað eins og Egilsstaðaskóla en þar starfa ríflega 500 manns á aldrinum 6 - 67 ára á hverjum degi. 
Starfsfók skólans er afar þakklátt kvenfélagskonum fyrir þessa veglegu og góðu gjöf.]]></description>
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2026
Egilsstaðaskóla var slitið í 78. skipti 10. júní í þremur athöfnum. Á skólaslitum 1. - 9. bekkjar voru tónlistaratriði flutt af nemendum í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum auk þess sem skólasöngurinn var fluttur eftir nokkurt hlé en höfundur textans, Sigþrúður Sigurðardóttir, lætur af störfum í vor eftir margra ára störf við skólann. Afhent voru verðlaun fyrir bestu myndir í ljósmyndamaraþoni sem 8. og 9. bekkur tók þátt í á vordögum. Nemendur fengu svo vitnisburð sinn afhentan og héldu að því loknu út í sumarfrí.
Um kvöldið var útskrift 10. bekkjar en þar voru flutt ávörp og tónlistaratriði.  Viðar Jónsson skólastjóri talaði til nemenda sem voru að útskrifast og þakkaði þeim gefandi samstarf. Árni Stefán Ólafsson formaður Nemendaráðs flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og umsjónarkennarar 10. bekkjar ávörpuðu samkomuna og minntust liðinna stunda með bekknum. 
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur í námi, dugnað, frumkvæði, framfarir, seiglu og prúðmennsku. Nemendur færðu 10. bekkjarteyminu gjafir og þakkir fyrir samveruna.
Hljómsveit skipuð útskriftarnemendum fluttu 3 lög við afar góðar undirtektir viðstaddra. 
Starfsfólk Egilsstaðaskóla þakkar nemendum og forráðamönnum þeirra fyrir samstarfið á skólaárinu og óskar þess að allir njóti sumarsins sem best. ]]></description>